Til Baka
DEILDU
Snýr aftur til auglýsingalands

Snýr aftur til auglýsingalands

ráðningar
June 12, 2025
Texti
Peel
Mynd
Aðsend
Peel auglýsingastofa styrkir teymið sitt enn frekar með tilkomu Sigtryggs Magnasonar sem mun hefja störf á næstu vikum.

Sigtryggur hefur síðustu ár starfað sem aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar í þremur ráðuneytum: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, innviðaráðuneytinu og nú síðast í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Fyrrverandi sköpunarstjóri Íslensku

Sigtryggur er alls ekki ókunnugur auglýsingabransanum. Hann starfaði þar á árunum 2005-2018, fyrst hjá Íslensku auglýsingastofunni, þar sem hann gegndi meðal annars stöðu sköpunarstjóra, og síðar hjá Hvíta húsinu.

Samhliða auglýsingum hefur Sigtryggur einnig unnið í leikhúsi, og leikrit hans hafa verið sett upp og gefin út hér á landi, í Bandaríkjunum og Þýskalandi.

„Það er gott að koma aftur heim í auglýsingaland,”

„Peel hefur verið leiðandi í skapandi auglýsingagerð og er sú auglýsingastofa sem hefur unnið flest alþjóðleg verðlaun á síðustu árum. Ég hlakka til að taka þátt í því verkefni, leggja mitt af mörkum í auglýsingagerðinni og jafnframt hjálpa til við að stækka og þróa vöruborð Peel með fjölbreyttri ráðgjöf.”

Sóknin heldur áfram

Peel er í sókn og þessi ráðning markar fyrsta skrefið í því að auka þjónustu og breikka vöruframboð fyrir okkar viðskiptavini.

„Við erum afar spennt að fá Sigtrygg til liðs við Peel,” segir stjórn Peel.

„Hann býr yfir einstökum reynslubanka úr bæði auglýsingum og skapandi greinum, sem mun styrkja okkur enn frekar. Sigtryggur mun leiða hugmyndadeild Peel í hlutverki sköpunarstjóra og við hlökkum til að sjá hann setja sitt mark á verkefnin okkar.”

SKOÐA

FLEIRI GREINAR

Banki fyrir blanka: Skæruliða-markaðsetning í þágu öryrkja
verkefni
June 12, 2025

Banki fyrir blanka: Skæruliða-markaðsetning í þágu öryrkja

TEXTI
Ritstjórn
Opnir viðburðir á Iceland Innovation Week
IIW
June 19, 2025

Opnir viðburðir á Iceland Innovation Week

TEXTI
Ritstjórn
Skerpt á grunnatriðum með FÍT verðlaunahöfum
verkefni
June 12, 2025

Skerpt á grunnatriðum með FÍT verðlaunahöfum

TEXTI
Ritstjórn