Herferð spjallaði við Guðmund Björnsson, framkvæmdastjóra upplifunar viðskiptavina SÝN um ferlið; efasemdir, mótbárur, tilfinningarnar og kraftmiklu viðbrögðin úr öllum áttum.
Hvernig var verkefnið unnið og til hverra leituðuð þið varðandi ráðgjöf og framkvæmd?
Fjöldi starfsmanna Sýnar tóku þátt í ferlinu sem fór fram í nánu samstarfi við danska ráðgjafafyrirtækið CO/PLUS.
Í greiningarferlinu voru nýtt fyrirliggjandi gögn, tekin voru viðtöl við starfsfólk og viðskiptavini, ásamt því að gerðar voru markaðsrannsóknir.
Fyrirtækið og helstu samkeppnisaðilar voru greindir og ítarleg greining var gerð á viðskiptavinum fyrirtækisins og markhópum.
Við lögðum mikla áherslu á að starfsfólk tæki virkan þátt í ferlinu til að hámarka árangurinn af vinnunni sem er mikilvægt til að auka líkur á vel heppnaðri innleiðingu og niðurstöðum sem skila fyrirtækinu árangri.
Hve lengi hefur endurmörkunin verið í undirbúningi - hvernig gekk ykkur að halda þessu leyndu?
Verkefnið byrjaði í ágúst á síðasta ári og í gær vorum við að ljúka fyrsta fasa af mörgum. Vinnan við nýju vörumerkjastefnuna var ekki á margra vitorði til að byrja með. Aðeins þeir sem komu beint að verkefninu voru upplýstir í upphafi, en eftir því sem verkefnið þróaðist stækkaði hópurinn jafnt og þétt.
Í lokin höfðu að mig minnir yfir 100 aðilar skrifað undir trúnaðaryfirlýsingu, sem endurspeglar umfang verkefnisins.
Þrátt fyrir vangaveltur í fjölmiðlum síðustu dagana héldum við okkur markvisst við fyrirfram ákveðna dagsetningu fyrir opinbera kynningu.
Við gáfum engar upplýsingar á lokametrunum sem skapaði eftirvæntingu og aukinn áhuga. Spennan sem myndaðist í kringum tilkynninguna varð svo mikil að nú, degi síðar, virðist var hægt að finna einstakling á landinu sem hefur ekki tekið eftir breytingunni.
Hver eru lykilatriðin sem stuðluðu að farsælu ferli?
Lykilatriðið í þessu ferli er að ná starfsfólkinu með í vegferðina. Ég tel að það hafi tekist afar vel. Ég átti marga mikilvæga fundi þar sem starfsfólk talaði af hreinskilni og sýndi tilfinningar, sem var ekki bara eðlilegt, heldur nauðsynlegt til að ná traustri og sameiginlegri niðurstöðu.
Ferlið fól í sér krefjandi ákvarðanir, þar á meðal að leggja til hliðar vörumerkið Stöð 2 sem hugrakkir frumkvöðlar byggðu upp með mikilli vinnu og elju.
En þegar við skoðuðum sögu fyrirtækjanna innan samstæðu Sýnar var ljóst að kjarninn í arfleifð fyrirtækisins er einmitt hugrekkið til að taka skref fram á við, jafnvel þótt það virðist óskynsamlegt í augum þeirra sem hafa ekki alla myndina.
Það er mannlegt að efast og það gerði ég svo sannarlega í öllu þessu ferli. Þess vegna skiptir máli að stórar ákvarðanir séu vel ígrundaðar og komi frá góðum stað, því þá minnkar efinn.
Af hverju völduð þið að hafa SÝN sem vörumerkið?
Sýn varð fyrir valinu af ýmsum vel ígrunduðum ástæðum, hér eru nokkrar;
- Fyrst og fremst var þetta vörumerki þegar í okkar eigu sem og vefslóðin syn.is.
- Nafnið er þekkt á markaðnum þó að það sé ekki endilega ofarlega í huga almennings.
- Það hefur frekar hlutlausa stöðu og fólk hafði almennt ekki neikvæða ímynd af nafninu sem gerir okkur kleift að endurmóta það í takt við nýja stefnu án þess að byrja frá grunni hvað varðar vitund og ímynd.
- Einnig er nafnið stutt, einfalt og auðvelt í framburði. Það vísar bæði til framtíðarsýnar en einnig til sjónar sem er hentugt fyrir fjölmiðlafyrirtæki.
Hefur þú sjálfur komið að viðlíka endurmörkun áður?
Ég hef komið að nokkrum endurmörkunarverkefnum á minni starfsævi. Þar má meðal annars nefna endurmörkun 365 og Tal á sínum tíma, auk þess sem ég tók þátt í endurmörkun Lyfju.
Var einhver innblástur að ferlinu eða vinnunni, einhver erlend eða þekkt vörumerki sem þið horfðuð til?
Við sóttum vissulega innblástur í ferlinu en það var ekki eitt ákveðið vörumerki sem við höfum í huga sem fyrirmynd.
Hver eru næstu skref?
Við erum bara rétt að byrja. Þeir sem þekkja til í markaðsheiminum vita að árangur næst ekki nema að vera sífellt að endurskoða hlutina, fylgjast með hvað er að gerast í kringum okkur og vera opin fyrir nýjum hugmyndum.
Það er fullt af spennandi verkefnum framundan sem við höfum ákveðið að ráðast í en ekki tímabært að ræða á þessari stundu. Við hjá Sýn erum með áætlun í gangi og þetta var fyrsta skrefið af mörgum.
Viðbrögðin undanfarna daga eru mjög jákvæð. Sem dæmi um það er hægt að nefna að aldrei í sögu Stöðvar 2 og Vodafone hafa eins margir heimsótt vefsvæði fyrirtækisins á einum sólarhring, margfalt fleiri en við erum vön. Þetta segja mér aðilar innan fyrirtækisins sem hafa fylgst með þessum tölum í langan tíma.