Til Baka
DEILDU
Fyrirtæki geti orðið sinn eigin áhrifavaldur

Fyrirtæki geti orðið sinn eigin áhrifavaldur

frétt
June 12, 2025
Texti
Ritstjórn
Mynd
Aranja
Fomo Media, samfélagsmiðlastofa hóf starfsemi nýverið og má finna á vefslóðinni  fomomedia.is. Við spurðum Camillu Rut stofnanda hvað Fomo er og hvernig það getur hjálpað vörumerkjum og efnissmiðum að tengjast.

Fomo Media er stofnað af Camillu Rut sem margir þekkja fyrir vinnu hennar á samfélagsmiðlum, stafrænum markaðssérfræðingi og skapandi efnisskapara ásamt hugbúnaðarfyrirtækinu Aranja. Stofan sérhæfir sig í samfélagsmiðlaumsjón, stafrænum sýnileika og framleiðslu á svokölluðu „UGC user generated content” eða notendasköpuðu efni sem hefur reynst einn áhrifaríkasti þátturinn í markaðssetningu á samfélagsmiðlum í dag.

Hvaðan kom hugmyndin og hvað varð til þess að þið ákváðuð að hrinda þessu formlega í framkvæmd?

„Hugmyndin að Fomo Media hefur mallað í maganum á mér í 4–5 ár og þróast smám saman í takt við reynsluna mína. Eftir að hafa starfað með fjölbreyttum fyrirtækjum bæði sem samfélagsmiðlastjóri og í gegnum áhrifavalda ferilinn, áttaði ég mig fljótt á því að mörgum fyrirtækjum vantar einfaldlega efni bæði til að viðhalda virkni og til að keyra árangursríkar auglýsingar til sinna markhópa.

Góð og skapandi efnisgerð getur dregið úr auglýsingakostnaði og hjálpar vörumerkjum að nýta betur virkni samfélagsmiðla algorithmans (sem ég vil kalla algrím, besti vinur okkar) Samfélagsmiðlar eru, eins og gefur til kynna, fyrst og fremst fyrir samfélag en ekki bara beina sölu. Það er vel hægt að nýta miðlana til að auka sölu, en aðferðirnar og efnið þurfa að vera í takt við það sem virkar á samfélagsmiðlum og við viljum hjálpa vörumerkjum að ná þeim árangri.“

Er FOMO eitthvað sem þú sjálf hefðir viljað hafa aðgang að í byrjuninni á ferlinum þínum í efnissköpun?

„Algjörlega! Ég byrjaði snemma í efnissköpun, þegar samfélagsmiðlar voru rétt að byrja að taka við sér. Á þeim tíma var stafræna markaðssetningin ekki jafn fyrirferðarmikil og hún er í dag. Ef ég væri að stíga mín fyrstu skref núna, væri þetta klárlega eitthvað sem ég myndi vilja hafa aðgang að. Staður þar sem maður getur fengið verkefni, nýtt hæfileikana sína og tengst skemmtilegum vörumerkjum.“

Er hugmyndin að FOMO vinni með svokölluðum micro-áhrifavöldum/hobbý efnishönnuðum frekar en þekktum andlitum/áhrifavöldum?

„Akkúrat! Hugmyndin er að skapa vettvang þar sem sköpunargáfurnar fá að njóta sín, óháð fylgjenda fjölda. Fólk þarf ekki lengur að vera „þekkt“ til að búa til áhrifaríkt efni, það sem skiptir máli er hæfileikinn til að segja sögurnar og tengjast fólki. Margir hafa auga fyrir efnisgerð, og við viljum gefa þeim stað til að láta sköpunina blómstra.“

Hvernig er hugsunin að FOMO breyti núverandi efnishönnunar/áhrifavaldaiðanðinum á Íslandi?

„Við erum ekki að reyna að keppa á sama velli og áhrifavaldar heldur erum við að bjóða upp á lausn fyrir vörumerki sem vilja byggja upp eigin miðla og samfélag í kringum sitt vörumerki með hjálp UGC (user-generated content).

Camilla Rut stofnandi Fomo Media

Við trúum því að hvert fyrirtæki geti orðið sinn eigin áhrifavaldur á sínum eigin miðlum með rétta efninu og réttri nálgun. Með UGC efni og alhliða samfélagsmiðla þjónustu hjálpum við vörumerkjum að virkja eigin rásir, stækka umfang sitt og ná til fólks á einlægan hátt.“

„Við sjáum aftur og aftur að það eru einfaldlega þau fyrirtæki sem ná að tala beint til fólks með góðum sýnileika og skapandi efni sem skera sig úr á samfélagsmiðlum. Fomo Media er hér til að hjálpa fyrirtækjum að gera það, á markvissan hátt“ segir Camilla Rut.

Teymið hjá Aranja sér um tæknilega þróun á öllu sem mun brúa bilið milli efnisskapara, samfélagsmiðla og vörumerkja. Aranja hefur einnig komið að ráðgjöf og þróun hugmynda á fyrstu stigum.

„Við hjá Aranja höfum séð frá fyrstu hendi hvernig notendaskapað efni á eigin miðlum fyrirtækja nær betur til notenda. Camilla Rut hefur séð um samfélagsmiðlamál fyrir okkur og dótturfélög okkar með góðum árangri. Það er því ánægjulegt að taka næsta skref með henni og skapa sérstakan vettvang Fomo Media til að tengja fyrirtæki við hæfileikaríka efnisskapara.” segir Sævar Már, framkvæmdastjóri Aranja.

SKOÐA

FLEIRI GREINAR

Sjónvarpsstjarnan á Super Bowl
pistill
June 12, 2025

Sjónvarpsstjarnan á Super Bowl

TEXTI
Hvíta Húsið
Kraftmikil nýsköpunarvika setur svip sinn á borgina
IIW
June 12, 2025

Kraftmikil nýsköpunarvika setur svip sinn á borgina

TEXTI
Ritstjórn
Að setja bjór á markað er ekkert grín - en hvað ef það er list?
viðtal
June 12, 2025

Að setja bjór á markað er ekkert grín - en hvað ef það er list?

TEXTI
Ritstjórn