Til Baka
DEILDU
Nýjir leiðtogar í markaðs- og stafrænni vegferð Rekstrarvara

Nýjir leiðtogar í markaðs- og stafrænni vegferð Rekstrarvara

ráðningar
June 12, 2025
Texti
Rekstrarvörur
Mynd
Rekstrarvörur
Rekstrarvörur hefur undanfarið styrkt og stækkað teymi sitt til að mæta síbreytilegum þörfum íslenskra fyrirtækja, stofnana og heimila. Nýverið tóku tvær lykilkonur við mikilvægum hlutverkum innan fyrirtækisins og leiða nú framtíðarsýn RV með sameinuðum krafti, reynslu og fagmennsku.

Emma Soffía Helgudóttir tók við markaðsmálum Rekstrarvara síðla árs 2023 og hefur nú formlega verið skipuð markaðsstjóri. Hún hefur yfirumsjón með markaðsstarfi fyrirtækisins og vinnur meðal annars að auglýsingaherferðum, samfélagsmiðlum, viðburðum og vörumerkjastefnu. Auk þess kemur hún að hönnun markaðsefnis, ásýndar og umbúða, og hefur gegnt lykilhlutverki í þróun RV PRO vörulínunnar, sérmerkts vöruframboðs Rekstrarvara fyrir fyrirtækjamarkaðinn.

Emma er við það að ljúka BA gráðu í skapandi greinum frá Háskólanum á Bifröst, með sérhæfingu í skapandi markaðssetningu. Hún býr yfir djúpri þekkingu á markaðsfræði, neytendahegðun og sjónrænni miðlun og hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum skapandi verkefnum sem höfða bæði til fyrirtækja og einstaklinga.

Karlotta Guðlaugsdóttir hóf störf sem verkefnastjóri stafrænnar stefnumótunar í lok árs 2024. Hún leiðir nú stafræna umbreytingu fyrirtækisins með áherslu á notendaupplifun, notagildi og sjálfbærar lausnir. Karlotta vinnur meðal annars að því að endurhugsa og endurhanna helstu snertifleti viðskiptavina RV, þar á meðal með nýrri vefverslun sem miðar að því að einfalda upplifun og bæta þjónustu við B2B markaðinn.

Hún er með diplómu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og menntun í almennri hönnun frá Tækniskólanum. Karlotta hefur starfað sem hönnuður og verkefnastjóri og býr yfir víðtækri reynslu af notendadrifinni hönnun og veflausnum fyrir ólíka markaði.

Með tilkomu Emmu og Karlottu tekur Rekstrarvörur markviss skref inn í nýjan kafla í sögu fyrirtækisins. Þetta eru mikilvægar breytingar fyrir rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur áratugalanga reynslu af því að veita áreiðanlega þjónustu. Með nýrri sýn og auknum krafti í markaðs- og stafrænni þróun er markmiðið að mæta þörfum fyrirtækja, stofnana og einstaklinga á íslenskum markaði á einfaldari, skýrari og notendavænni hátt.

SKOÐA

FLEIRI GREINAR

Hvað einkennir góðan markaðsstjóra?
pistill
June 12, 2025

Hvað einkennir góðan markaðsstjóra?

TEXTI
Þórður Sverrisson
Þögnin stundum áhrifamesta hljóðið
viðtal
June 12, 2025

Þögnin stundum áhrifamesta hljóðið

TEXTI
Ritstjórn & Sigurður Eiríksson
Nýsköpunarþing: Er rétt fyrir íslensk fyrirtæki að flagga íslenskum uppruna?
frétt
June 12, 2025

Nýsköpunarþing: Er rétt fyrir íslensk fyrirtæki að flagga íslenskum uppruna?

TEXTI
Ritstjórn