Til Baka
DEILDU
Ólöf til liðs við Athygli

Ólöf til liðs við Athygli

frétt
June 12, 2025
Texti
Athygli
Mynd
Aðsend
Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og síðar samskiptastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Þar mun hún sinna eigin ráðgjöf og verkefnum.

Ólöf hefur víðtæka reynslu á sviði fjölmiðla, ráðgjafar og samskipta og heldur úti vinsælu hlaðvarpi, Komið gott, ásamt Kristínu Gunnarsdóttur.  

„Ólöf býr yfir mikilli reynslu á mörgum ólíkum sviðum og býr yfir ótrúlegu tengslaneti. Við hjá Athygli erum mjög spennt fyrir því að vinna nánar með henni.  Ég þekki Ólöfu vel úr fjölmiðlum og í gegnum annað samstarf,“ segir Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli.  

„Athygli er rótgróið fyrirtæki á sviði samskipta sem ætlar sér að stækka á næstunni. Ég er spennt fyrir verkefnunum sem framundan eru en ekki síður fyrir því að fá að kynnast betur því frábæra fagfólki sem þar starfar,” segir Ólöf.

Ráðgjafarfyrirtækið Athygli var stofnað árið 1989 og er eitt elsta fyrirtækið á sínu sviði á Íslandi. Athygli sérhæfir sig í stjórnendaráðgjöf, samskiptaráðgjöf, upplýsingamiðlun og stefnumótun. Félagið er samstarfsaðili norska ráðgjafafyrirtækisins Geelmuydeen Kiese sem er með skrifstofur í Osló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi

SKOÐA

FLEIRI GREINAR

Herferð— Nýr bransamiðill á Íslandi
frétt
June 12, 2025

Herferð— Nýr bransamiðill á Íslandi

TEXTI
Ritstjórn
„Minnir á kynlífsverslun“ - fagfólk gefur álit
spegill
June 12, 2025

„Minnir á kynlífsverslun“ - fagfólk gefur álit

TEXTI
Ritstjórn
“Kamala is brat” -  micro trend og meme-menning á samfélagsmiðlum
pistill
June 12, 2025

“Kamala is brat” - micro trend og meme-menning á samfélagsmiðlum

TEXTI
Lilja Kristín, CMO Vodafone