Til Baka
DEILDU
Raunsæ umræða um íslensk markaðsmál - skráning hafin

Raunsæ umræða um íslensk markaðsmál - skráning hafin

viðburður
June 12, 2025
Texti
Ritstjórn
Mynd
Aðsend
Vinnustofa um markaðsmál með áherslu á íslenskan raunveruleika fer fram þann 11. júní nk. Frábært tækifæri til að spegla sig við kollega, heyra fróðlegar skoðanir og fá betri tilfinningu fyrir því hvernig vindarnir blása í íslenskum markaðsmálum.

Vinnustofan er haldin með frumkvæði Steinars Þórs Ólafssonar sem margir þekkja af LinkedIn enda hefur hann verið einn af forystunotendum miðilsins í íslensku atvinnulífi. Þar deilir hann gjarnan hugrenningum um eigin rekstur ásamt samskiptum og markaðssetningu almennt en Steinar hefur marga fjöruna sopið í markaðsmálum. Steinar efnir nú til vinnustofu fyrir fagfólk í markaðsmálum þar sem áherslan er umræða um stöðuna á markaðsmálum á Íslandi á hlutlægan hátt;

Hvað virkar og hvað virkar ekki?

Steinar telur að þörf sé á slíkri umræðu þar sem áhersla er á íslenskan raunveruleika. Venjan hafi verið að fá inn erlenda fyrirlesara sem sýna draumaverkefni sem eru fjarri aðstæðum flestra í íslenskum markaðsiðnaði þar sem tíminn er ávallt naumur og fjármagnið af skornum skammti.

Eins og hlaðvarpssýning í Borgarleikhúsinu

Hugmyndina fékk hann út frá hlaðvarpsviðburðum sem eru afar vinsælir um þessar mundir þar sem fólk borgar sig inn til að sjá sína uppáhaldshlaðarvapsstjórnendur láta gamminn geysa upp á sviði. Hann líkir viðburðum sem þessum við baðstofur fyrri tíma. „Fólk vill greinilega hittast, hlusta og spjalla, svolítið eins og í baðstofunni á sínum tíma, þá safnaðist fólk saman til að heyra sögur - nú mætir fólk í Borgarleikhúsið til að hlusta á hlaðvarp.“

Steinar Þór er þekktur fyrirlesari en vill sjá fleiri taka þátt í umræðunni

Markmiðið með vinnustofunni segir Steinar vera að fá saman öflugt markaðsfólk til að prófa slíka vinnustofu og bætir við „þetta er ekki hugsað sem framhald af umræðum í Markaðsnördum heldur fyrir þau sem vinna við þetta alla daga.“

Hann segir þetta ekki snúast um réttu svörin, heldur að skapa umræðu um raunveruleg viðfangsefni, með mismunandi reynslu og sjónarhornum.

„ Ég vil að að þetta veki fólk til umhugsunar, það sjái hluti í nýju ljósi og fái það út úr þessu að vera ekki eitt í þessu.“

En er fólk feimið við að deila sínum hugmyndum af hræðslu við að missa eitthvað í hendur samkeppnisaðila. Steinar telur að svo sé ekki og bendir á að markaðsfólk upplifi sig stundum í samkeppni hvert við annað en oftar eru áskoranirnar utan frá. Vinnustofan eigi að vera upplifun sem eflir tengslanetið og víkkar sjóndeildarhringinn.  

„Ef þetta verður vettvangur þar sem fólk kynnist þannig að það finni sig í að geta hringt í eða sent skilaboð hvort á annað eftir vinnustofuna nú þá hefur þetta algjörlega náð markmiði sínu.“

Er þörf á hreinskilnari og beinskeyttari umræðu um markaðsmál á Íslandi?  

„Já, ég held við þurfum ekki endilega meiri beinskeytta umræðu heldur raunsærri.“

Steinar sem unnið hefur við markaðs- og samskiptamál hér á landi í um tíu ár hefur að eigin sögn mætt á ótal viðburði þar sem erlendir fyrirlesarar segja frá glæsilegum verkefnum í allt öðrum raunheimi en þeim íslenska.

„Þetta eru hetjusögur sem fengu 18 mánaða undirbúning og hundrað milljóna budget.“

Hann segir það allt gott og blessað en það vanti íslensku upplifunina. „Það sem maður situr oft eftir með er helst sú tilfinning að það væri gaman að hafa meiri tíma, fleiri hendur og stærri buddu. Það vantar meiri umræðu sem endurspeglar íslenskan veruleika. Þar sem stærðirnar eru smærri, hlutverkin fleiri og fjárhæðirnar minni.“

Er umræðan um markaðsmál stöðnuð að þínu mati?

„Er hún nokkur? Þið hjá Herferð standið ykkur vel en annars er lítið að frétta. Ég heyri meira að segja af stórum fyrirtækjum undir sama móðurfélagi sem eru varla að bera saman bækur sínar eða læra hvert af öðru. Sem er skrýtið, því það væri ekkert síður skynsamlegt í markaðsmálum en í fjármálum, innkaupum eða fasteignarekstri. Þetta samtal virðist bara ekki eiga sér mikið stað“ segir Steinar að lokum.

Skráning á vinnustofuna er opin til 7. júní og má skrá sig hér.

Verðið er 17.500 kr. og fylgir kvittun með kaupunum.

Vinnustofan ætti að vera styrkhæf hjá flestum stéttarfélögum og úr námssjóði margra vinnustaða.

SKOÐA

FLEIRI GREINAR

Hvað einkennir sterk vörumerki?
viðtal
June 12, 2025

Hvað einkennir sterk vörumerki?

TEXTI
Samstarf
Markaðsfólk: Elvar Páll hjá Marel
viðtal
June 12, 2025

Markaðsfólk: Elvar Páll hjá Marel

TEXTI
Ritstjórn
Viðburður: Áskoranir vefverslana
frétt
June 12, 2025

Viðburður: Áskoranir vefverslana

TEXTI
Ritstjórn