Til Baka
DEILDU
Sigríður Theódóra til Aton

Sigríður Theódóra til Aton

ráðningar
June 19, 2025
Texti
Mynd
Baldur Kristjánsson
Sigríður Theódóra Pétursdóttir hefur verið ráðin til starfa sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton.

Sérsvið hennar verður stefnumótun og vörumerkjauppbygging en hún hefur áralanga reynslu af markaðsstörfum og vörumerkjauppbyggingu fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Koma Sigríðar Theódóru til Aton er liður í enn frekari sókn stofunnar í vörumerkjauppbyggingu og auglýsingagerð.

Sigríður Theódóra starfaði í um áratug á auglýsingastofunni Brandenburg, m.a. sem viðskiptastjóri, framkvæmdastjóri og meðeigandi.

Hún hefur unnið fyrir ótalmörg fyrirtæki og stofnanir, þ.á.m. Nova, Play og Íslandsstofu og hefur einnig starfað við ráðgjöf og framleiðslu.

Hún hefur meistarapróf í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og lauk námi í markaðslegri stjórnun og samskiptum við Toulouse Business School.

Sigríður Theódóra segist hlakka til spennandi verkefna framundan.

„Aton hefur ótvíræða sérstöðu þegar kemur að skipulögðum samskiptum, stefnumótun og markaðsmálum. Ég sé ótal tækifæri til að sækja fram á auglýsingamarkaði og nýta enn betur samlegðaráhrif sköpunar, hönnunar og samskipta. Vörumerki virka best þegar allar birtingarmyndir þeirra, hönnun, auglýsingar og samskipti við fjölmiðla og viðskiptavini, segja sömu söguna. Mér er sannur heiður að taka þátt í þeirri uppbyggingu og þeirri vegferð sem Aton er á, að vera framsækin og öflug stofa í fremstu röð.“, segir Sigríður Theódóra.

„Það er vægast sagt mikill fengur í því að fá Sigríði Theódóru til liðs við okkur. Hún verður hluti af frábærum hópi og kemur með þekkingu sem mun styrkja Aton enn frekar. Hún kemur ekki aðeins með dýrmæta reynslu að borðinu heldur deilir hún með okkur sýn á hvernig markaðs- og samskiptamál geta stuðlað að miklum og langvarandi árangri viðskiptavina okkar. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í hópinn og hlökkum mikið til samstarfsins”, segir Sif Jóhannsdóttir, rekstrarstjóri Aton.

SKOÐA

FLEIRI GREINAR

Keeps: Glöggt er gests augað
IIW
June 12, 2025

Keeps: Glöggt er gests augað

TEXTI
Ritstjórn
Bylgja ofeinföldunar sem betur fer að sveiflast til baka
verkefni
June 12, 2025

Bylgja ofeinföldunar sem betur fer að sveiflast til baka

TEXTI
Ritstjórn
Að taka enga áhættu er áhætta út af fyrir sig
frétt
June 12, 2025

Að taka enga áhættu er áhætta út af fyrir sig

TEXTI
Ritstjórn